Prenatal Testing Pamphlet Icelandic


Samtökin National Down Syndrome Congress og Global hafa tekið höndum saman um að gefa út 2. útgáfu bæklings síns um fósturrannsóknir í tengslum við Downs-heilkenni, sem er fáanlegt á ensku, spænsku og íslensku. Þessi 2. útgáfa byggist á fyrstu skoðanakönnuninni á þessu sviði sem lögð var fyrir verðandi mæður og heilbrigðisstarfsfólk á landsvísu í Bandaríkjunum og er fáanlegt bæði rafrænt og á pappírsformi endurgjaldslaust.
Upplýsingar úr bæklingnum
Hvað er Downs-heilkenni?
Downs-heilkenni er stundum nefnt þrístæða litnings 21 vegna þess að um er að ræða frávik þar sem fólk fæðist með þrjú eintök litnings númer 21 í stað tveggja. Í Bandaríkjunum fæðist eitt af hverjum 691 börnum með þetta frávik.3 Hundruð þúsunda einstaklinga í Bandaríkjunum eru með Downs-heilkenni og talið er að fjöldi slíkra einstaklinga í heiminum öllum sé um sex milljónir. . .
Hvaða áhrif mun Downs-heilkenni hafa á barnið mitt?
Engin leið er að vita hvað framtíðin ber í skauti sér fyrir nokkuð barn. Á margan hátt eru börn með Downs-heilkenni eins og hver önnur börn. Öll börn þurfa að matast, skipta þarf á bleyjunum þeirra og þau þurfa að fá tækifæri til að leika sér. Mestu skiptir þó að þau þurfa alúð. Börn með Downs-heilkenni hafa þessar sömu þarfir. . .
Heilsa fólks með downs-heilkenni
Meðallífslíkur Bandaríkjamanna með Downs-heilkenni eru sem stendur 60 ár, samanborið við 25 ár árið 19838,9 (hins vegar er mismunur milli kynþátta og þjóðernisuppruna hvað þetta varðar). . .